Brunaði á læknavaktina eftir þrjá daga í rúminu: „Þegar lífið gefur þér löngutöng á báðum“

Sálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Raggi nagli, hefur margoft sýnt að hún er með bestu pistlahöfundum landsins.

Ragga heldur úti vinsælli síðu á Facebook þar sem hún stiklar á stóru um það sem er að gerast í hennar lífi og deilir uppbyggilegum skilaboðum með fylgjendum sínum.

Í færslu í morgun greindi Ragga frá því að „lífið hefði gefið henni löngutöng á báðum“ á dögunum.

„Kona fer til London í sex daga til að eyða tíma með fjölskyldunni, sérstaklega 19 ára afmælisdegi "litla" frænda. En þá ákveður alheimurinn að slá þig utanundir með rennblautri borðtusku og henda öllum plönum um skemmtilega viku lengst útí hafsauga.“

Ragga segir að eftir aðeins tvo daga hafi skrokkurinn byrjað að vera með dólg.

„Hiti, hausverkur, ólympísk þreyta, bólgnir eitlar, stútfullt nef af slími, rakvélablöð í hálsinum, djúpur hrygluhósti. Hausinn límdur á koddann í niðadimmu herbergi fyrir ljósfælin augu. Eftir þrjá daga var brunað með Uber á Læknavakt í London.

Glaðlegur og viðmótsþýður indverskur læknir tók á móti Naglanum,“ segir Ragga sem rifjar upp hvernig læknirinn heilsaði henni:

"Hello, you look lovely, with a beautiful smile"

„Naglinn sem hafði ekki farið í bað í fjóra daga klædd í skítugar joggingbuxur, með hettu til að fela fituga hárlokka leit ALLS EKKI "lovely" út, en hlýnaði samt við þessi orð læknisins.

Með vasaljós í kok var niðurstaða Doktor Nasir að öllum líkindum streptókokkar, og Naglinn skundaði heim með sýklalyf í fyrsta skipti síðan í blautri barnæsku.“

Því fór það svo að afmælisdegi litla frænda var eytt í bælinu með verkjalyf að horfa á löggur leysa sakamál í Chicago-borg.

„Sálfræðisamtölum með fjölmörgum skjólstæðingum þurfti að slá á frest. Fyrirlestur fyrir öðlingana hjá Amnesty þurfti að bíða því röddin er rám og hás eins og eftir fimm daga brekkusöng á Þjóðhátíð. En allt er á réttri leið og Naglinn gat loksins mundað sínar heittelskuðu járnstangir í ræktinni í morgun án mikilla vandkvæða,“ segir hún en tekur þó fram að hún hafi sýnt sjálfri sér mildi og lækkað þyngdir eða fækkað endurtekningum þegar þess þurfti. Ragga endar færsluna sína á uppbyggilegum skilaboðum að vanda.

„Það prumpar enginn regnbogum alla daga. Hindranir, vesen, ströggl og streita er víst hluti af lífinu. Enginn er með bleikan einhyrning í garðinum. Sólin skín ekki alla daga. Það valhoppa ekki allir í sænskum smábæ eins og í Astrid Lindgren bók. Það þarf að koma rigning til að mynda regnbogann.“