Björn Bjarnason, fyrrverandi þingmaður og ráðherra til margra ára, segir að kominn sé tími á nýjar reglur um grímunotkun. Björn varpar þessum hugleiðingum fram eftir að hafa farið á tónleika með Sinfóníuhljómsveit Íslands í Eldborg á fimmtudagskvöld.
Björn skrifar pistil á heimasíðu sína og rifjar upp að sóttvarnayfirvöld hér hafi tekið nýja stefnu varðandi grímur í lok júlí í fyrra. Bendir Björn á að skylt hafi verið að sitja með grímu í Eldborgarsalnum í Hörpu á fimmtudagskvöld þótt fjöldi áheyranda væri takmarkaður og fjarlægð milli þeirra eftir reglum sóttvarnafræðanna.
„Ég hef vakið máls á því við sundfélaga mína í Laugardalslauginni að ekki sé skylt að vera með grímu utan dyra á meðan þess er beðið að laugin sé opnuð. Á blaði við innganginn stendur auk þess að „æskilegt“ sé að laugargestir séu með grímu í anddyri laugarinnar. Er óhætt að koma grímulaus á sundstaði? Hver hefur svar við því?,“ spyr Björn.
Björn rifjar svo upp leiðara Kolbrúnar Bergþórsdóttur í Fréttablaðinu síðastliðinn fimmtudag þar sem grímuskyldan var meðal annars til umræðu. Í leiðara sínum sagði Kolbrún meðal annars:
„Sjá má fólk, sem er eitt á göngu, fjarri öðrum, arka áfram með grímuna fasta á andlitinu. Bíleigendur, einir í bíl sínum, aka út um allar koppagrundir með grímu. Þessir einstaklingar virðast hafa fengið ofurást á grímunum sínum. Við skulum ekki taka þær frá þeim. Leyfum þeim að njóta þeirra meðan þeir vilja. Það er hins vegar óþarfi á nánast smitlausum tímum að klína þeim upp á fólk sem kærir sig alls ekki um þær og notar þær yfirleitt kolvitlaust.“
Björn tekur undir þessi orð Kolbrúnar og segir mikilvægt að sóttvarnayfirvöld njóti áfram trausts og tiltrúar almennings. „Þau hafa unnið afrek á undanförnum mánuðum og þjóðin hefur farið að tilmælum þeirra með augljósum og góðum árangri.“
Björn segir að gildi grímunotkunar sé umdeilt en gríman hafi fengið að njóta vafans.
„Að lokum fjarar einfaldlega undan reglum sem settar eru án meðalhófs. Þannig er til dæmis komið fyrir reglunni sem skyldar okkur til að sitja með grímu á tónleikum í Eldborg. Ekki ber að amast við þeim sem er ljúft að bera grímu en ekki heldur hinum sem kjósa að láta grímuna falla. Við viljum hins vegar fá að taka niður grímuna án þess að vera litin hornauga sem tilræðismenn við heilbrigði þjóðarinnar þess vegna verður sóttvarnalæknir að hanna nýja grímureglu.“