Björn Ingi tapar í Lands­rétti: Þarf að greiða 80 milljónir

Fjöl­miðla­maðurinn Björn Ingi Hrafns­son hefur verið dæmdur til að greiða þrota­búi Pressunar ehf. átta­tíu milljónir króna. Lands­réttur stað­festi niður­stöðu Héraðs­dóms Vestur­lands þess efnis í dag.

Þrota­bú Pressunar höfðaði mál gegn Birni Inga og krafðist riftunar á tveimur ráð­stöfunum sem hann hafði komið að sem lán­veitandi Pressunar ehf. Héraðs­dómur hafði áður fallist á kröfur Pressunnar ehf. um að veð­setningum á eignum fé­lagsins, sem gerðar voru með láns­samningi milli Pressunnar ehf. og Björns Inga auk trygginga­bréfs, yrði rift.

Dóms­­málið hófst í kjöl­far gjald­­þrots Pressunnar, sem átti og rak eyjan.is, bleikt.is og 433.is auk þess sem fé­lagið átti hlut í DV. Frjáls fjöl­­miðlun tók yfir eignir Pressunnar árið 2017 og inni í því var yfir­­­taka á 80 milljón króna skulda­bréfi.

Björn Ingi sagðist hafa lánað Pressunni þá upp­­hæð og átti að fá hana endur­­­greidda ári síðar, með alls­herjar­veði í Pressunni til tryggingar.

Þrota­bú Pressunnar vildi hins vegar meina að Björn Ingi hafi ekki lánað téðar 80 milljónir og hafi til­­búin skuld verið yfir­­­tekin með kaup­­samningi Pressunnar ehf. og Frjálsrar fjöl­­miðlunar.

Björn Ingi sagði hins vegar í máls­vörn sinni að það hafi blasað við í septem­ber 2017 að Pressan yrði gjald­­þrota yrði ekkert gert. Tekist hafi að halda fé­laginu gangandi yfir sumarið með greiðslum frá sér í sam­ræmi við láns­samning hans við Pressuna.

Þannig hafi hann í reynd fjár­­magnað fé­lagið árum saman með lánum og per­­sónu­­legum á­byrgðum þar sem hann þótti hafa meira láns­­traust en fé­lagið. Fór hann því fram á sýknu af kröfu Pressunnar.