„Ég trúi þessu ekki... Ég er laus úr einangrun," segir Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, á Facebook-síðu sinni nú í morgunsárið.
Björgvin greindist með Covid-19 á dögunum og missti þar af leiðandi af fyrstu leikjum Íslands í milliriðlum Evrópumótsins í handbolta sem nú stendur yfir. Björgvins var sárt saknað í tapinu gegn Danmörku en í stórsigrinum á Frakklandi stal markvörðurinn ungi Viktor Gísli Hallgrímsson senunni og varði hvert skotið á fætur öðru.
Björgvin Páll ætti því að vera klár í slaginn þegar Ísland leikur gríðarlega mikilvægan leik gegn Króatíu. Með sigri gegn Króatíu og Svartfjallalandi á miðvikudag tryggir íslenska liðið sér sæti í undanúrslitum mótsins. Ekki liggur fyrir hvort Elvar Örn Jónsson og Ólafur Andrés Guðmundsson sem greindust sama dag og Björgvin verði klárir í leikinn í dag. Björgvin var í sjöunda himni þegar hann tilkynnti fylgjendum sínum á Facebook tíðindin í morgun.
„Þakka samveruna á miðlunum! Kann að meta öll “follow”, skilaboð, pepp o.fl. en megið ekki búast við miklum svörum í framhaldinu... fyrr en eftir mót! ❤️ Nú fer öll orkan í að hjálpa strákunum og njóta þess að vera hluti af þessu ævintýri aftur! Króatía á eftir! Áfram Ísland!