Birta nýhætt með bleyju þegar Dagur fór í borgarstjórn og telur að tími hans sé liðinn

Birta Karen Tryggvadóttir, háskólanemi og frambjóðandi Sjálfstæðisflokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar, segir að kominn sé tími á breytingar í borginni.

Birta, sem er 22 ára, skrifar skemmtilega grein sem birtist á vef Vísis í morgun. Hún skipar 34. sætið á lista flokksins í borginni og þó ekki sé beinlínis um baráttusæti að ræða hefur hún sterkar skoðanir á stöðu mála í borginni.

„Ég er 22 ára gömul, og þekki ekkert annað en að Reykjavík sé stjórnað af Degi B. Eggertssyni og félögum. Borgarstjórinn hefur verið í áhrifastöðu í borginni – með örstuttum hléum – í tuttugu ár. Þegar hann tók fyrst sæti sem aðalmaður í borgarstjórn árið 2002 var ég nýhætt á bleyju, og Apple hafði nýverið kynnt iPodinn til sögunnar. Tilkynnt var á dögunum að Apple ætlaði að hætta framleiðslu á spilaranum vinsæla eftir tuttugu ára framleiðslusögu. Allt hefur víst sinn tíma. Það gildir um stjórnmálafólk, rétt eins og raftæki sem einu sinni þóttu nýmóðins.“

Birta styður Hildi Björnsdóttur, oddvita Sjálfstæðisflokksins, fyrir kosningarnar á morgun og bendir á að hún sé öflug þriggja barna móðir sem þekkir raunveruleika ungs fólks í borginni á eigin skinni.

„Hún þekkir brasið sem fylgir því að vera með leikskólabörn í Reykjavík, og man eftir því hindrunarhlaupi sem húsnæðismarkaðurinn er fyrir fyrstu kaupendur. Fyrir okkur unga fólkið er mikilvægt að eiga fyrirmyndir. Fólk sem ryður brautina og gefur okkur beinharðar sannanir fyrir því að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi. Hildur stendur svo sannarlega undir því. Hún er tilbúin að taka við keflinu.“

Hún segir að ekki sé síður mikilvægt að þeir – oft á tíðum miðaldra karlar – sem fyrir eru á fleti þekki sinn vitjunartíma. „Sagan af iPodinum er ágætis áminning um það. Framtíð verður einhvern tíma fortíð. Það er hollt að breyta reglulega til. Hleypa nýjum og ferskum andlitum að. Nú er tíminn kominn í Reykjavík.“

Birta segir að Dagur B. Eggertsson megi eiga það að hann hafi sýnt fádæma klókindi við að halda völdum. Honum hafi ítrekað tekist að snúa tapaðri stöðu sér í hag og kippt inn nýjum samstarfsflokkum eftir hentugleika. Kosningarnar nú á laugardaginn snúist nákvæmlega um þetta.

„Valið er skýrt á laugardag. Sjálfstæðisflokkinn – og glæsilega unga, öfluga konu - eða enn eina útgáfuna af því sama.“