Birgitta Haukdal myndi ekki láta bólusetja bæði börnin sín

Söngkonan ástsæla Birgitta Haukdal myndi ekki að láta bólusetja bæði börnin sín ef þau fengju boð í bólusetningu í dag. Myndi hún láta bólusetja eldra barnið, en ekki það yngra. Vill hún bíða eftir frekari rannsóknum á yngri börnum. Birgitta ræddi um bólusetningar og margt fleira íBítinu á Bylgjunnií morgun ásamt Ásgeiri Kolbeins.

Birgitta ræddi um umræðuna í kringum væntanlegar bólusetningar barna.

„Ég á erfitt með þetta. Við hjónin erum bæði bólusett. Síðan erum við með tvö börn. Ég er ekki alveg að þora, fyrr en ég veit aðeins meira hvaða áhrif veiran hefur á börnin, fá þau bólusetningu í haust? Ég er svona… Ég þori ekki alveg strax af stað með þau.“

Ef þér væri boðið, myndir þú fara með þau í bólusetningu í dag?

„Ég myndi fara með tólf ára drenginn minn, já. Ekki spurning. Það eru ekki alveg komnar rannsóknir á yngri börnum, en ég myndi fara með tólf ára drenginn minn í bólusetningu.“