„Ég tel eðlilegt og æskilegt að kristinfræði sé kynnt æsku þjóðarinnar í meira mæli en gert er,“ segir Birgir Þórarinsson, þingmaður Miðflokksins, í samtali við Fréttablaðið í dag.
Frumvarp Miðflokksins og tveggja þingmanna Sjálfstæðisflokks um að kristnifræðsla verði tekin upp á nýjan leik í grunnskólum var rædd á Alþingi í gær.
Bent er á það í frétt Fréttablaðsins að kennslu í trúarbragðafræði hafi verið breytt árið 2007 eftir átölur frá nefnd Evrópuráðsins gegn kynþáttafordómum og umburðarleysi. Birgir telur engu að síður eðlilegt að kristinfræði sé gert hærra undir höfði en gert er.
„Saga landsins er samofin kristninni og því ætti hún að njóta sérstöðu innan veggja grunnskólanna,“ segir hann en frumvarpið gerir ekki ráð fyrir að kennslu annarra trúarbragða verði hætt, einungis að kristninni verði gefið meira vægi. „Kristinfræðikennsla er ekki trúarleg boðun heldur fræðileg kennsla,“ segir hann.
Í Fréttablaðinu er einnig rætt við Ingu Auðbjörgu K. Straumland, formann Siðmenntar, sem segir frumvarpið vera tímaskekkju.
„Kristni eru trúarbrögð og falla þar af leiðandi undir trúarbragðafræðikennslu. Þar að auki er kristni nú þegar gert hærra undir höfði en öðrum trúarbrögðum í skólunum,“ segir hún meðal annars.