Jóhann Páll Jóhannsson, verðlaunablaðamaður sem fékk æðstu viðurkenninga blaðamanna hér á landi í félagi við samstarfsmann sinn Jón Bjarka Magnússon vegna lekamálsins, segist í færslu á facebook hafa verið búinn að sættast við þá tilhugsun að Ólafur Ragnar Grímsson yrði forseti til dauðadags, e.t.v. í 20 til 25 ár í viðbót ef Guð lofi!
En nú er hann kominn í PR-herferð fyrir því að íslamófóbía verði normalíseruð, sem er hættulegt og fyrirlitlegt, og stillir sjálfum sér upp andspænis „frjálslyndum öflum“ eins og hann kallar þau,“ segir verðlaunablaðamaðurinn í færslu á eigin fésbók.
„Um leið og hann [ÓRG] elur á tortryggni gagnvart múslimum og umburðarlyndi lyppast hann allur niður og „lamast“ að eigin sögn á fundi með fulltrúa einhvers ógeðslegasta fasistaríkis í heimi, sem stjórnað er af wahhab-íslamistum, breiðir markvisst út slíkan boðskap og hálsheggur börn í nafni hans.“
Þetta leiði til þess að Jóhann Páll hafi endurskoðað fyrri afstöðu til forseta Íslands.
„Svo nú langar mig í nýjan forseta, t.d. Bigga löggu, verði hann rekinn úr lögreglunni, eða einhverja spennandi týpu á aldri við ÓRG, t.d. Sigrúnu Magnúsdóttur eða Sighvat Björgvinsson,“ skrifar blaðamaðurinn knái á Stundinni, ekki alveg laus við kaldhæðni.