Bandaríska sendiráðið hefur sent frá sér tilkynningu til þegna sinna þar sem bandarískir ríkisborgarar eru varaðir við hættuástandi í miðbæ Reykjavíkur um helgina. Eru Bandaríkjamenn meðal annars hvattir til að forðast margmenni.
Í yfirlýsingunni er lagt til að bandarískir ríkisborgarar fylgist með tilkynningum frá fjölmiðlum og verði á varðbergi um helgina.
„Bandarískir ríkisborgarar eru hvattir til að vera á varðbergi í miðbæ Reykjavíkur frá 25. nóvember til 27. nóvember, forðast mannmergð og fylgjast með fréttum úr íslenskum fjölmiðlum,“ stendur í færslunni.
Ætla má að tilkynningin sé til komin vegna fréttaflutnings um hugsanlega hefndarárás í miðborginni um helgina vegna hnífstungunnar á Bankastræti Club í síðustu viku. Skilaboð hafa gengið á milli fólks þar sem varað er við yfirvofandi hefndaraðgerðum þar sem dyraverðir og jafnvel óbreyttir borgarar gætu fengið að finna fyrir því.
American citizens encouraged to remain vigilant in downtown Reykjavik November 25-27, avoid large crowds, and monitor Icelandic media for security updates: https://t.co/zykcVFInQE
— U.S. Embassy Iceland (@usembreykjavik) November 23, 2022