Banaslys varð í Reyðarfirði í gærkvöldi þegar ökumaður sexhjóls velti hjóli sínu í fjalllendi. Þetta kemur fram í skeyti frá lögreglunni á Austurlandi.
Að sögn lögreglu valt hjólið yfir ökumanninn með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn lögreglu er unnið að rannsókn málsins og verða ekki frekari upplýsingar veittar að svo stöddu.