Bæjarfulltrúi fer fram á rannsókn á Kópavogsbæ: „Sjálftaka, spillingarmenning og leyndarhyggja“

„Sjálftaka, spillingarmenning og leyndarhyggja í Kópavogi.“ Svona hefst pistill Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur, bæjarfulltrúa Pírata í Kópavogi, sem hún birtir á Facebook.

„Kópavogsbær kaupir reglulega auglýsingar í Voga, tímariti Sjálfstæðismanna í Kópavogi. Ég komst að þessu fyrir tilviljun og spurðist fyrir um hvaða reglur giltu um styrki til stjórnmálaflokka af þessum toga,“ segir hún. Fékk Sigurbjörg þau svör að viðmið um auglýsingar til stjórnmálaflokka hafi verið ákveðnar á fundi kjörinna fulltrúa árið 2011 og miðað hafi verið við 150.000 kr. á ári. „Þessi samþykkt er þó hvergi skráð í opinberum gögnum og þeir flokkar sem hafa komið nýir inn í bæjarstjórn eftir að þetta var samþykkt hafa ekki verið upplýstir um styrkina.“

Í kjölfarið spurðist hún fyrir um upphæðir þessara styrkja síðustu tvö kjörtímabil. „Nú er komið í ljós að Sjálfstæðisflokkurinn hefur hlotið langhæsta auglýsingastyrkinn á tímabilinu. Ekki nóg með það, heldur hefur Sjálfstæðisflokkurinn líka hlotið umtalsverðar upphæðir greiddar umfram téð viðmið, en fyrir alþingiskosningarnar 2016 og 2017 keypti Kópavogsbær viðbótarauglýsingar í Voga, tímarit Sjálfstæðismanna.“

Hún segir enga stoð fyrir þessum greiðslum og þær finnist ekki í opnu bókhaldi bæjarins.

„Þetta fyrirkomulag er til þess fallið að fela styrkveitingar til stjórnmálaflokka og gefa ákveðnum flokkum forskot að hærri styrkjum en öðrum. Fyrirkomulagið er ógagnsætt, hvergi birt og ekki kynnt öllum flokkum. Nú er það auk þess orðið ljóst að flokkurinn sem er við stjórn hefur notið þess mest og fengið hæstu styrkina.“

Fer hún fram á rannsókn. „Réttast væri að leggja þessa auglýsingastyrki til stjórnmálaflokka af hið snarasta, samhliða því að rannsaka þær greiðslur sem Sjálftsæðisflokkurinn í Kópavogi hefur fengið úr bæjarsjóði undanfarin ár.“