Auður Þorbergsdóttir, fyrrverandi héraðsdómari, er látin 89 ára að aldri. Hún lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi þann 26. janúar síðastliðinn. Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag.
Auður fæddist í Reykjavík þann 20. apríl 1933 og lauk stúdentsprófi frá MR 1953 og embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1958. Tveimur árum síðar fékk hún leyfi til málflutnings í héraðsdómi.
Auður var skipuð borgardómari fyrst kvenna árið 1972 og sat hún í því embætti til ársins 1992 að hún var skipuð héraðsdómi í Reykjavík. Gegndi hún því embætti til ársins 2002.
Auður sat meðal annars í stjórn Íslandsdeildar norrænu lögfræðingamótanna 1972 til 1981 og þá var hún formaður siðanefndar Læknafélags Íslands á árunum 1978 til 1990. Þess er getið í Morgunblaðinu að Auður hafi frá árinu 1963 framkvæmt hjónavígslur og mun hún hafa verið fyrsta konan til þess hér á landi.
Eiginmaður hennar var Hannes K. Davíðsson arkitekt en hann lést árið 1995. Börn þeirra eru Kristinn Tanni og Guðrún Þorbjörg.