Ástþór Magnússon, stofnandi Friðar 2000 og fyrrverandi forsetaframbjóðandi, segir að á átta árum hafa nær 50 milljarðar í auglýsingatekjum frá íslenskum fyrirtækjum. Hann er ósáttur með að Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands hafi valið þann miðill til að koma skilaboðum sínum á framfæri.
„Bílainnflutningsfyrirtækið islandus.is hefur í tvo áratugi boðið lægri verð á nýjum og nýlegum bílum frá erlendum bílaumboðum. Undanfarin ár hefur Islandus.is auglýst þjónustuna á Facebook eftir að bandaríski netmiðillinn tók flesta landsmenn til sín. Meira að segja Forseti Íslands valdi Facebook til samskipta við þjóðina fram yfir Íslenska bloggmiðla sem margir hverjir berjast í bökkum við erlent stórfyrirtæki sem heldur úti sjóræningja fjölmiðlun á Íslandi,“ skrifar Ástþórá Vísi.
„Facebook er einn stærsti skattsvikari Íslands. Á átta árum hafa nær 50 milljarðar í auglýsingatekjum frá Íslenskum fyrirtækjum og stjórnvöldum flætt úr landinu að stórum hluta til Facebook sem heldur úti skúffufyrirtæki á Írlandi og greiðir ekki krónu til Íslensks samfélags, hvorki VSK né aðra skatta,“ bætir hann við.
Ástþór segir að Facebook sé ekki meða neinastarfsmenn á Íslandi þrátt fyrir að vera stærsti fjölmiðill landsins.
„Íslendingar eru hafðir að fíflum með engri þjónustu á móðurmálinu og tilviljanakenndum fasískum aðgerðum í gegnum hringrás frá erlendum EkkiMáSvara (NoReply) netföngum. Þannig hefur Facebook nú bannað Islandus.is að auglýsa sín góðu tilboð á Mercedes Benz bílum sem í sumum tilfellum geta sparað neytendum milljónir króna.“
„Í síðustu einkaþotuferð sinni til Íslands mengaði Zuckerberg ekki aðeins Íslenska náttúru með CO2 útblæstri frá skattaskjóls olíukaupum sínum, hann er nú einnig að brjóta Íslensk samkeppnislög Nr. 44/2005 og hefur komist upp með það mánuðum saman. Facebook svarar engum fyrirspurnum um málið á málefnalegum nótum, einhver úrkynjuð tölvumenni eða Fésbókadraugur eins og sumir kalla það virðast alfarið stjórna fyrirtækinu. Bréfi lögmanns sem var sent 15 ágúst s.l. til Meta Facebook skúffufyrirtækisins á Írlandi sem sagt er bera ábyrgð á Íslensku starfseminni var ekki svarað,“ skrifar Ástþór.
„Starfsmenn Dómsmálaráðuneytisins í Reykjavík virðast standa á gati og segjast ekki vita hvernig þeir geti haft samband við Facebook. Nú lætur islandus.is reyna á þá leið að stefna Meta Facebook fyrir dóm á Írlandi.“
„Í gegnum vefsíðu Evrópusambandsins og þarlendra stjórnvalda verður stofnað dómsmál með skaðabótakröfu fyrir hverja þá auglýsingu sem Facebook illmennið hefur lokað fyrir með ólögmætum hætti. Þetta er kannski eina leiðin til að ná einhverju vitrænu sambandi við þetta fáránlega fyrirtæki sem tröllríður hér húsum og blóðmjólkar Íslenskt samfélag.“
„Íslensk stjórnvöld þurfa að grípa til aðgerða og koma lögum yfir sjóræningjastarfsemi Facebook sem með óábyrgri ritstjórnarstefnu ógnar bæði heilbrigðum viðskiptaháttum og lýðræðisumræðu í landinu. Facebook er í dag með ráðandi stöðu á auglýsingamarkaði og í þjóðfélagsumræðu á Íslandi.“
„Þetta er gengið svo langt að samskipti Forseta Íslands, ráðamanna, ráðuneyta og margra Íslenskra stofnana bæði almennar tilkynningar og auglýsingar fara nú að stórum hluta um Facebook ritskoðun í bandaríkjunum. Á augnabliki geta illa uppalin tölvumenni Facebook tekið uppá því að loka fyrir samskiptin og einstaka stofnanir þjóðfélagsins Þannig hefur t.d. Facebook ritskoðun í dag lokað fyrir fréttaflutning íslensks fjölmiðils frá Úkraníu,“ skrifar hann að lokum og á þar við um Ernu Ýr blaðamann frettin.is