Ásta Kristín Andrésdóttir, hjúkrunarfræðingur sem sýknuð var af ákæru fyrir manndráp af gáleysi í starfi, er í athyglisverðu viðtali í nýjasta tölublaði Stundarinnar.
Ásta er eini heilbrigðisstarfsmaðurinn hér á landi sem hefur verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi í starfi en óhætt er að segja að málið hafi haft gífurleg áhrif á líf hennar. Í viðtalinu kemur meðal annars fram hvernig Ásta missti vinnuna, starfsleyfið, íbúðina sína auk þess sem hjónabandið hennar fór í vaskinn. Þá missti Ásta tengslin við sjálfa sig, börnin sín og aðra.
Allt hófst þetta á haustmánuðum 2012 þegar andlát varð á Landspítalanum. Ásta var á vakt umrætt kvöld og fljótlega vaknaði grunur um að mistök eða vanræksla hefði leitt til andláts mannsins. Til að gera langa sögu stutta var Ásta sýknuð í málinu þremur árum síðar en eins og gefur að skilja var það henni afar þungbært að sæta ákæru fyrir svo alvarlegar sakargiftir.
„Mig langar að skila skömminni,“ segir hún meðal annars í viðtalinu við Stundina. Hún segir að eftir sýknudóminn hafi hún búist við því að líf hennar gæti orðið eðlilegt aftur en raunin varð önnur.
„En ég vissi ekki hvernig ég átti að höndla lífið eftir þetta allt saman. Eftir stríðið,“ segir hún en Ásta leitaði meðal annars í örvandi lyf og áfengi til að meðhöndla sársauka sinn.
Hún skildi við eiginmann sinn árið 2016 og segir Ásta í viðtalinu að það hafi ekki lifað málsmeðferðina af.
„Skilnaðurinn var ekki bara málsmeðferðinni að kenna en það brotnaði rosalega mikið á meðan hún varði og var í raun grjótið sem braut það endanlega. Þetta var gott hjónaband sem við áttum og ári áður en við skildum reyndum við allt til að halda því gangandi en það tókst ekki.“
Árið 2018 segist Ásta hafa verið farin að loka sig meira og meira af og í sumarbyrjun 2020 var henni sagt upp störfum á svæfingadeild Landspítalans. Höfðu yfirmenn hennar komist að því að hún hafði nálgast efedrín í lyfjaskápum í vinnunni. Hún missti starfsleyfi sitt í kjölfarið og segir Ásta að það hafi verið sanngjarnt. Hún segir að hjarta hennar hafi ekki lengur verið í hjúkrun og ekki verið það fyrr en hún var búin að vera edrú í fjórtán mánuði.
Ásta lagðist inn á Vog og hefur hún unnið að því að komast á réttan kjöl að nýju eftir áföll síðustu ára. Hún fékk starfsleyfið aftur og svo fékk hún vinnu á Skjóli þar sem henni líður vel enda lífið einfaldara.
„Á Skjóli er ég bara með sömu skjólstæðingana nema að stundum koma nýir og aðrir fara. Ég fæ að hjálpa fólki að kveðja lífið á fallegan hátt og á sem bestan hátt,“ segir hún.