Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur verið gagnrýndur töluvert vegna Facebook-færslu sem hann skrifaði í gærkvöldi. Ásmundur talaði þar um málefni hælisleitenda hér á landi.
„Í Flugstöðinni bíða nú 17 hælisleitendur sem voru að koma til landsins í dag eftir flutningi til Reykjavíkur. Fiskisagan um að á Íslandi sé fólki veitt hæli fær byr undir báða vængi. Allt þetta fólk þarf að komast í einangrun til Reykjavíkur. Það þarf að gera í mörgum ferðum á bílum því fólkið má ekki vera saman nema hjón eða fjölskyldur. Þá taka 17 manns í einangrun eða sóttkví töluvert húsrými og þyngja yfirlestað heilbrigðiskerfi,“ sagði Ásmundur sem endaði færsluna á þessari spurningu: „Eigum við ekki nóg með okkur sjálf núna.“
Þó að margir hafi tekið undir með Ásmundi voru gagnrýnisraddirnar einnig háværar. Páll Valur Björnsson, fyrrverandi þingmaður Bjartrar framtíðar, var hálf orðlaus og sagði í athugasemd sinni: „Ási í alvörunni?“
Einn benti á að það gæti nú varla staðist hjá Ásmundi að innan við sólarhring eftir að egypska Kedhr-fjölskyldan fékk landvistarleyfi af mannúðarástæðum væri komin holskefla af flóttamönnum til landsins.
María Lilja Þrastardóttir fjölmiðlakona læur Ásmund heyra það í athugasemd sinni. „Tjah, ætli samfélagið eigi það nú ekki inni hjá þér að þú skutlist með blessað fólkið sem er eflaust þreytt eftir volkið. Annars vona ég bara að þitt erindi á Leifsstöð hafi verið að fara héðan og sem lengst af landi brott með manneskjuhatrið í farteskinu enda er tími ykkar velmegunarbólgnu íhaldsseggjanna löngu liðinn,“ sagði hún.
Óskar Steinn Jónínuson Ómarsson, varaformaður Ungra jafnaðarmanna og fyrrverandi ritari Samfylkingarinnar, spyr Ásmund um það hvort hann hafi einhverja hugmynd úr hvaða aðstæðum þetta fólk er að koma.
„Færðu ekkert óbragð í munninn við að skrifa svona færslu þar sem þú smættar fólk af holdi og blóði niður í opinber útgjöld, eða ertu bara svona illa innrættur? Að veita þessu fólki vernd hér á landi kostar okkur miklu minna en bensínreikningurinn þinn í kosningabaráttu.“
Í Flugstöðinni bíða nú 17 hælisleitendur sem voru að koma til landsins í dag eftir flutningi til Reykjavíkur....
Posted by Ásmundur Friðriksson on Föstudagur, 25. september 2020