Ásgeir með ótrúlega sögu af Óla Stef: „Flestir hefðu bara horft á sjúkrabílinn keyra í burtu“

Ásgeir Jónsson, fyrrverandi blaðamaður, sjávarútvegsfræðingur og handboltamaður til margra ára, lýsir magnaðri sögu af Ólafi Stefánssyni, einum besta handboltamanni Íslandssögunnar, á Twitter-síðu sinni.

Ólafur, eða Óli Stef eins og hann er gjarnan kallaður, er þekktur fyrir sína einlægu framkomu og hefur hann vakið athygli á RÚV fyrir góðar leikgreiningar á leikjum íslenska handboltalandsliðsins á EM í Ungverjalandi.

Ásgeir, sem starfaði lengi sem blaðamaður á DV, segir frá því á Twitter að Ólafur hafi komið vinkonu hans til bjargar í útskriftarferð á Mallorca árið 2002 eftir að henni var byrlað. Á þeim tíma var Ólafur á hátindi ferilsins sem einn besti handboltamaður heims.

„Ég var staddur ásamt fríðum hópi í útskriftarferð á Mallorca 2002. Það var þrammandi partí í tvær vikur og ungt fólk aldrei upplifað annað eins frelsi. Þarna var Óli Stef þegar besti handboltamaður heims. Hann hafði farið á kostum með Magdeburg, sem vann Meistaradeildina þetta ár þar sem hann var yfirburðamaður og markahæstur í úrslitum. Líka markahæstur og í úrvalsliði Evrópumótsins sama ár,“ segir hann.

Á þessum tíma var Ólafur að skipta yfir frá þýska liðinu Magdeburg til Ciudad Real þar sem hann átti eftir að vinna fjölmarga titla.

„Þá eins og nú er hefð að þýsk lið fari í vikuferð í sólina þegar tímabilinu lýkur og þarna var Óli mættur með Kretzschmar og liðsfélögum til að slettu úr klaufunum. Við sátum á skemmtistað hópurinn og mikið partí í gangi þegar það er gripið um axlirnar á mér og vini mínum. „Nei Íslendingar“. Það var Óli. Á þessum tímapunkti var þetta svipað fyrir tvítugan handboltakappa að hitta Messi. Sem sagt fagnaðarfundir, amk fyrir annan okkar,“ segir Ásgeir.

Hann segir að Óli og nokkrir liðsfélagar hafi skemmt sér fram eftir kvöldi og allir haft gaman, allt þar til alvarlegt atvik átti sér stað.

„Æskuvinkonu minni var byrlað ólyfjan af einhverju skítseiði og ástandið eftir því. Hringt á sjúkrabíl og ég fór með henni,“ segir hann. Hann bætir við að Óli hafi verið fljótur að átta sig á því að ungu Íslendingarnir yrðu í vandræðum þar sem hvorugt talaði spænsku. Sjálfur talaði Óli ágætis spænsku og fór að hann bauðst til að koma með.

„Og Óli hafði rétt fyrir sér. Ekki nokkur maður talaði ensku á spítalanum og við hefðum verið í algjöru basli án hans. Óli tók öll samtölin, hjálpaði með alla pappíra og borgaði þann kostnað sem féll til. Á meðan verið var að huga að vinkonu minni sátum við biðstofunni og spjölluðum um heima og geima. Á svipuðum nótum og nýlegu podcasti. Óli talaði um mikilvægi þess að upplifa sjálfur, fara sínar leiðir, trú og dreyma. Flest sem hafði og hefur mótað hans ferðalag og gerir enn.“

Ásgeir segir að vinkona hans hafi verið komin á fætur eftir um þrjár klukkustundir. Henni hafi hins vegar ekki verið trúað því kókaín hafi fundist í blóðinu.

„Sjaldan prófað sérstaklega fyrir lyfjum sem eru notuð í þessum tilgangi. Hentu kókaíni í blönduna og þolanda er ekki trúað. Hversu oft ætli byrlun hafi verið afskrifuð með þessum hætti? En allir komust heilir heim og sem betur fer fór þetta allt vel,“ segir Ásgeir sem endar frásögnina á þessum orðum:

„Eins og ég nefndi í upphafi var Óli sennilega frægasti handboltamaður heims þarna. Flestir hefðu bara horft á sjúkrabílinn keyra í burtu og haldið kvöldi sínu áfram. Fyrir mér kristallar þetta persónuna sem Óli er. Takk Óli.“