Ásdís Jenna Ástráðsdóttir táknmálsfræðingur varð bráðkvödd á heimili sínu í Kópavogi síðastliðinn laugardag. Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu í dag, en Ásdís var fædd þann 10. janúar árið 1970 og var því 51 árs þegar hún lést.
Ásdís var heyrnarskert og fjölfötluð og notaði hún því hjólastól alla tíð. Hún var áberandi í réttindabaráttu fatlaðs fólks og var harðákveðin í að láta fötlun sína ekki stöðva sig. Hún lauk stúdentsprófi frá MH árið 1992, stundaði nám í Danmörku um tíma og lauk svo BA-námi í táknmálsfræði frá Háskóla Íslands. Þá lagði hún stund á nám í fötlunarfræðum og síðustu ár var hún í laganámi við Háskólann á Bifröst.
Eftirlifandi eiginmaður Ásdísar er Kevin Kristófer Oliversson og eignuðust þau soninn Adam Ástráð sem er níu ára. Í viðtali við Morgunblaðið árið 2012 sögðu hjónin að fólk hefði talað um að þau ættu ekki að eignast barn þar sem Ásdís gæti ekki séð um það sjálf. Sagði hún að þeim hefði vonandi tekist að sýna fólki fram á að fatlaðir gætu vel stofnað fjölskyldu og séð um börn sín svo framarlega sem þau fái aðstoð.
„Ég gefst aldrei upp. Ég er þrjósk,“ sagði Ásdís meðal annars í viðtalinu.