Árni átti fyrir heilu einbýlishúsi: Tapaði öllu á hrikalegan hátt

„Eina nótt árið 1997 átti ég fyrir heilu einbýlishúsi af bestu gerð. Næstu nótt átti ég ekki neitt og mér var alveg sama.“

Þetta segir maður að nafni Árni í sögu sinni á vefnum Lokum.is en um er að ræða átaksverkefni Samtaka áhugafólks um spilafíkn þar sem ljósi er varpað á spilafíkn og skaðleg áhrif spilakassa á líf spilafíkla. Árni, sem er kominn yfir miðjan aldur, hefur verið spilalaus í fimmtán en tap hans í spilakössum hleypur á tugum milljóna króna.

Árni var sjómaður mestalla ævi og var ungur að árum þegar hann byrjaði að spila. Hann var ungur skipstjóri og þótti býsna öflugur í sínu fagi. Hann þénaði vel og fyrst um sinn spilaði hann fyrir afganginn af laununum þegar búið var að greiða af húsinu, setja bensín á bílinn og mat í ísskápinn.

„Spilafíkn er sérstæður sjúkdómur. Hann byggist annars vegar upp á áföllum sem vaxa á lífsleiðinni og aldrei er tekið á. Þetta er hins vegar spennufíkn og í upphafi gróðafíkn. Fæstir gera sér grein fyrir að þeir séu spilafíklar fyrr en í óefni er komið,“ segir Árni sem bætir við að hann hafi reddað því að borga af húsinu, keypt mat, sett bensín á bílinn og þrifið hann og bónað.

„Restina hafði ég fyrir mig. Ég fór ekkert í frí til útlanda með börnin og lék mér. Ég reddaði þessum nauðsynjum fyrir lúkkið. Ég þurfti að líta sæmilega út út á við svo fólk gæti ekkert verið að væla út af mér.“

Í frásögn sinni segir hann að spilafíknin einkennist af stjórnleysi, líkt og alkóhólisma sem hann glímdi einnig við þar til fyrir fimmtán árum síðan. Það tók hann langan tíma að borga niður þær skuldir sem hann hafði safnað þegar hann var spilafíkill. Honum tókst það fyrir tveimur árum en rifjar upp að tapið í spilakössum hafi stundum verið ævintýralegt. Það skipti hann þó ekki miklu máli hvort hann vann eða tapaði þegar fíknin tók yfir.

„Í upphafi skipti máli að vinna og vinningarnir gátu enst í einhvern tíma,“ segir hann og rifjar upp frásögnina um einbýlishúsið sem hann átt fyrir árið 1997. Þeir peningar töpuðust allir.

„Þegar mest var skuldaði ég 20 til 30 milljónir. En ég kunni á bankakerfið. Ég tók lífeyrislán, borgaði niður einhverjar skuldir, sýndi veltu, skuldbreytti lánum og velti þannig boltanum á undan mér,“ segir Árni.

Þegar bankarnir hrundu var Árni í þröngri stöðu, hann skuldaði þrjár milljónir króna umfram eignir og var með um fjögur hundruð þúsund krónur í greiðslubyrði á mánuði.

„Planið var að komast á núllið og byrja síðan aftur að spila,“ segir Árni í viðtalinu og hlær. Þegar hann sá lánin síga niður eftir því sem hann borgaði meira inn á þau jókst ákafinn í að koma sér á núllið og spilafíknin dvínaði með mikilli sjálfsvinnu. „Nú skulda ég engum neitt. Einkenni velflestra spilafíkla er að vera harðduglegir. Annað hvort fara þeir þessa leið eða gera sig gjaldþrota.“

Í maí næstkomandi hefur Árni verið spilalaus í fimmtán ár. Hann sækir fundi Gamblers Anonymous einu sinni í viku og einn AA-fund sömuleiðis. Hann segir að mikill stígandi hafi verið í lífi hans að undanförnu og hlakkar hann til verkefna dagsins.

„Ég er alltaf spenntur fyrir því hvað gerist næst. Ég vinn stanslaust í sjálfum mér. Á morgnana fer allt frá korter og upp í klukkutíma að vinna í þessu því mér finnst það gaman. Ég er mjög heppinn með það.“

Árni segir að spilakassar séu engum til góðs og vill hann að slökkt verði á þeim til frambúðar.

„Það deyja fleiri úr spilafíkn en við vitum um. Ég skoða dánarfregnir á hverjum degi og þekki alltaf einhvern sem deyr úr fíkn. Spilafíklar bara taka líf sitt. Þeir rekast vel í hópi með öðrum spilafíklum en þar á milli eru þeir einir heima hjá sér, eiga ekki pening til að spila eða eru hættir að spila, kunna ekki að lifa lífinu,“ segir Árni.

Nánar um átak Lokum.is