Arnar Þór Jónsson, lögmaður og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir í aðsendri grein í Morgunblaðinuí dag að Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir sé í raun einráður.
„Sóttvarnalæknir gerir tillögur að þeim reglum sem hér gilda og er því í reynd með hönd á löggjafarvaldinu. Sjálfur fer hann svo með framkvæmdavaldið þegar hann ákveður hvernig – og gagnvart hverjum – þessum reglum er beitt,“ segir Arnar Þór.
„Þegar borgararnir reyna að verjast með því að leita til dómstóla gefur sóttvarnalæknir skýrslu fyrir dómi og niðurstaða dómstóla látin ráðast af túlkun hans! Í reynd er sóttvarnalæknir því einráður og hugsjónin um þrígreiningu valdsins orðin að innantómri skurn.“
Hann segir margt skapa falskt öryggi í faraldrinum, nefnir hann sem dæmi örvunarskammt, bóluefni og kröfu um samstöðu í þjóðfélaginu.
Arnar Þór segir að frelsið gefi lífinu gildi og lífið verði innantómt án þess.
„Öryggi er okkur öllum vissulega mikilvægt, en fleira hefur vægi. Mannleg nánd, samtal, samvera, samkennd, skilningur, sameiginlegur tilgangur, kærleikur, fjölbreytni einstaklinganna, margradda kór sem saman flytur tónverk lífsins í allri sinni dýrð, háska og fegurð. Það er ómanneskjulegt og hættulegt og niðurlægjandi að ætla að skipta þessu öllu út fyrir falskt öryggi.“