Eri Edwald, einn þeirra þriggja sem kærði Vítalíu Lazarevu og Arnar Grant fyrir tilraun til fjárkúgunar segir í viðtali við RÚV að það hafi verið erfið ákvörðun að kæra þau Vítalíu og Arnar, en að hann hafi ekki haft neinn annan kost. Þá sagði hann í samtali við RÚV að hann taldi að allar staðreyndir málsins hefðu ekki komið fram ef hann hefði ekki farið þessa leið.
Vítalía og Arnar eru kærð fyrir að hafa krafið Ara, Hreggvið Jónsson og Þórð Má Jóhannesson um alls 150 milljónir gegn því að Vítalía félli frá því að kæra þá fyrir að brjóta á sér kynferðislega. Kæra mannanna þriggja var lögð fram síðasta föstudag. Vítalía og Arnar eru einnig kærð fyrir að áreiti vini og skyldmenni mannanna þriggja.
Sjá frétt: Vítalía og Arnar Grant kærð fyrir tilraun til fjárkúgunar
Vítalía greindi fyrst frá brotum mannanna í þáttunum Eigin konur í stjórn Eddu Falak. Í kjölfarið ýmist létu þeir af stjórnarformennsku félaga sinna eða misstu störf sín. Hreggviður lét af stjórnarformennsku í Veritas og Þórður vék úr stjórn Festar. Arnar Grant fór í leyfi frá sínum störfum í World Class og Ara var sagt upp störfum hjá Ísey útflutningi þar sem hann hafði gegnt stöðu framkvæmdarstjóra.
Vítalía greindi svo frá því í mars að hún ætti bókaðan tíma hjá lögreglu til að kæra en greint var frá því í Fréttablaðinu í morgun að mennirnir þrír hafni því að hún hafi lagt fram kæru og vísa til vottorðs frá Ríkislögreglustjóra og segja ekkert mál af þessum toga til rannsóknar á hendur þeim hjá lögreglu.