Anna Kristjánsdóttir, íbúi á Tenerife og einn skemmtilegasti bloggari landsins, skrifar um nokkrar plágur sem hún segir herja á eyjuna fögru í pistli gærdagsins.
„Það fór aðeins að hlýna í gær og veitti ekki af. Ég er búin að fá leið á þessum kulda sem hefur verið á kvöldin að undanförnu. Ég freistaðist meira að segja til að fara peysulaus á krána en þótti samt napurt á heimleiðinni. Þetta er samt allt að koma. Það er spáð sæmilegum hita á daginn og lágmarkhitinn á nóttunni verður kannski um 20°C. Svo breytist allt á sunnudag þegar klukkunni verður flýtt og þar með sól klukkutíma lengur á kvöldin.
Umferðin hérna er orðin algjör plága,“ skrifar Anna.
Hún segist þetta ekki aðeins eiga við um hraðbrautina, sem vart er hægt að kalla hraðbraut lengur vegna mikils umferðarþunga að hennar mati.
„Heldur er eitthvað um lokanir gatna í Los Cristianos útaf karnivalinu sem gerir það að verkum að ekki er lengur hægt að svindla með því að fara framhjá Valdes Center að vestanverðunni sem var hægt áður. Við getum samt huggað okkur við að þeirri hátíð lýkur eftir helgina, en þá kemur önnur umferðarplága sem eru túristarnir sem koma til að eyða páskunum hérna og margir á bílaleigubílum.“
„Ég skrapp til Las Chafiras í gær og umferðin gekk í hægagangi á leiðinni til baka. Samt gladdi það mig að sjá hana Mercý mína á ferðinni og hún leit alveg ljómandi vel út. Gott að vita til þess að núverandi eigandi veitir henni gott viðhald.“
„En ég nenni ekki að vera svona neikvæð. Svo er farið að styttast í að ég skreppi til Íslands svo ég geti kynnst kuldanum á eigin skinni. Ég er strax farin að kvíða því, en svo þarf ég að koma aftur í maí 2024 en þá til að endurnýja vegabréfið. Vonandi verður þá búið að búið að draga Ísland eitthvað sunnar á jarðarkringlunni svo að það verði líft þarna eftir það,“ skrifar Anna. .