Andlát: Hörður Bergmann

Hörður Bergmann, kennari og rithöfundur lést á Landspítalanum að morgni 10. Október 2020.

Hörður fæddist í Keflavík og ólst þar upp. Hann lauk stúdentsprófi frá ML 1954, BA-prófi í dönsku, sögu og uppeldisfræði frá HÍ 1956, stundaði nám í kennslufræði, uppeldissálarfræði og dönsku við Kennaraháskólann í Kaupmannahöfn 1971-72 og sótti auk þess ýmis námskeið í dönsku, málakennslu og kennslu- og uppeldisfræðum hér á landi, í Danmörku, Svíþjóð og Englandi.

Hörður var kennari við Gagnfræðaskólann við Hringbraut 1956-58 og við Hagaskóla 1958-74, var námstjóri í dönsku við skólarannsóknadeild menntamálaráðuneytis 1972-82 og endurskoðandi námskrár fyrir grunnskóla við sama ráðuneyti 1982-84 og annaðist endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara á vegum KHÍ 1973-79, var deildarstjóri fræðsludeildar Vinnueftirlits ríkisins 1984-93 og framkvæmdastjóri Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna 1993-2001.

Hörður sat í Stúdentaráði HÍ 1955-56, var formaður Félags róttækra stúdenta 1956-57, sat í stjórn Æskulýðsfylkingarinnar 1958-60 og Félags háskólamenntaðra kennara 1968-71, var í fræðsluráði Reykjavíkur 1978-82 og fulltrúi Íslands í nefnd sem stjórnaði norrænu grannmálaáætluninni 1976-77. Hörður var fyrsti formaður Hagþenkis, félags höfunda fræðirita og kennslugagna, 1983-89 og sat í stjórn Fjölís, samtaka rétthafa, frá 1986-2002.

Hörður hefur ritað margt um mennta- og þjóðmál og birt það í blöðum og tímaritum. Þrjár bækur um þróun þjóðfélags og lífshátta liggja eftir hann: Umbúðaþjóðfélagið - uppgjör og afhjúpun, nýr framfaraskilningur, 1989, Þjóðráð. Haldbær þróun samfélags og lífshátta, 1999, og Að vera eða sýnast. Gagnrýnin hugsun á tímum sjónarspilsins, 2007. Hann hefur samið, ýmist einn eða í samstarfi við aðra, fjölda kennslubóka í dönsku og íslensku auk kennsluleiðbeininga. Þá er hann höfundur bóka og fræðsluefnis um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustað. Hann þýddi ritið Inngangur að félagsfræði eftir Peter Berger, ásamt Lofti Guttormssyni, 1968. Það var lengi vel notað við kennslu í framhaldsskólum.