Alfredo pasta með silkikenndri áferð sem þú átt eftir að elska

Hér er kominn dásamlega ljúffengur pastaréttur sem bráðnar í munni sem allir sælkerar og aðdáendur ítalskra pastarétta munu elska. Það er engin önnur en María Gomez sem töfraði þennan rétt fram sem ber heiti Alfredo pasta. „Þessi dásamlegi og einfaldi pastaréttur er innblásin af pastarétt sem ég fékk mér af og til á Ruby Tuesday þegar það var hér á landi. Alfredo pasta er vinsæl ítölsk uppskrift þar sem flötu pasta eins og fettuccine eða tagliatelle er blandað í sósu þar sem uppistaðan er smjör og parmesan. Hér bætti ég þó um betur og setti auðvitað rjóma í líka svo úr varð silkimjúk glansandi og bragðmikil sósa,“segir María sem er þekkt fyrir sínar sælkera uppskriftir sem enginn stenst. Hægt er að fylgjast með Maríu á síðunni hennar Paz.is

Ykkur til fróðleiks þá er munurinn á pasta með eggjum í og án eggja er aðallega áferðin, en mörgum finnst pasta með eggjum í oft vera mýkra og með silkikenndari áferð. Það eina sem þarf að passa með eggjapasta er að hafa meira vatn til suðu því það dregur vel í sig vökva og að pastasósan sé ögn þynnri eða vökvameiri en venjulega.

M&H Alfredo pasta 4.jpg

Rétturinn er afar fljótlegur en pastað þarf ekki nema 7 mínútna suðu sem dæmi, en kosturinn við De Cecco pasta er að það er fljótgert og klessist síður saman./Ljósmyndir María Gomez.

M&H Alfredo Pasta 2.jpg

Alfredo sósa

110 g smjör

1 askja Philadelphia Original

1,5 tsk. hvítlauksduft (Garlic powder, alls ekki hvítlaukssalt)

3 dl rjómi

1 msk. Oscar kjúklingakraftur í duftformi

180 g rifinn parmesan ostur

1/2 tsk. salt

1/4 tsk. svartur pipar

Annað hráefni sem til þarf:

2 kjúklingabringur

lítill brokkólí haus

3 msk. ólífuolía

salt og pipar eftir smekk

250 g ósoðið De Cecco tagliatelle All´Uovo

Aðferð:

  1. Skerið bringur í langa þunna bita og hitið ólífuoliu á pönnu
  2. Steikið bringunar í olíunni og saltið og piprið
  3. Þegar bringurnar taka á sig hvítan lit má bæta brokkóli út á og steikja saman þar til bringurnar eru smá brúnaðar og brokkólíið glansandi grænt og fallegt
  4. Takið af pönnunni og setjið á disk til hliðar
  5. Sjóðið nú pastað í vel söltuðu vatni í 7 mínútur, vatnið á að vera nánast jafn saltað og sjóvatn
  6. Gerið sósuna á meðan pastað sýður en notið sömu pönnuna til verksins og kjúklingurinn var á án þess að þrífa neitt á milli

Alfredo sósa

  1. Byrjið á að bræða smjörið á pönnuni við vægan hita
  2. Þegar smjörið er bráðnað bætið þá Philadelphia ostinum og hvítlauksduftinu saman við og hrærið vel, þetta verður alveg smá aðskilið og skrítin áferð en ekki hafa áhyggjur af því, það á að vera þannig á þessu stigi.
  3. Bætið næst við rjómanum og kjúklingakraftinum og hrærið vel við vægan hita þar til byrjar að sjóða, lækkið þá aðeins undir og bætið salti, pipar og parmesan ostinum, við smátt og smátt og haldið áfram að hræra.
  4. Leyfið nú sósunni að sjóða saman í eins og 5 mínútur og hrærið af og til í á meðan.
  5. Takið svo af hellunni og látið sósuna standa í aðrar 5 mínútur því þá þykknar sósan.
  6. Hellið vatninu af pastanu en alls ekki skola það.
  7. Setjið kjúklinginn og brokkólíið saman við sósuna og blandið saman.
  8. Hægt er að bera pastað fram sér og fá sér sósu ofan á eða blanda pastanu saman við sósuna og bera þannig fram.
  9. Mæli með að hafa hvítlauksbrauð með þessum rétti og jafnvel ferskt salat.
M&H Alfredo pasta 3.jpg

Dásamlegur réttur sem enginn verður svikinn af./Ljósmyndir María Gomez.

Verði ykkur að góðu.