Alexandra Eldey lést á Spáni - Safna fyrir fjölskyldu hennar

Fjölskylda og vinir þeirra Birgittu Jeanne Sigursteinsdóttur og Finnboga Darra Guðmundssonar hafa hafið söfnun eftir að þau misstu 20 mánaða gamla dóttur sína, Alexöndru Eldey, úr bráðri heilahimnubólgu síðastliðinn laugardag, 18. júní, á Madríd á Spáni. Fréttablaðið fjallar um málið.

Í frétt Fréttablaðsins segir:

„Veikindi Alexöndru Eldeyjar fóru að gera vart við sig í fluginu rétt fyrir komu fjölskyldunnar til Madríd að kvöldi miðvikudagsins 15. júní.

Systir Birgittu, Edda Sveinsdóttir, segir í samtali við Fréttablaðið marga hafa haft samband og viljað leggja þeim lið. Í kjölfarið hafi verið ákveðið að setja af stað söfnun til að létta þeim róðurinn í því sem framundan er.

Í færslu sem Edda birti, og Fréttablaðið hefur fengið leyfi til að birta, kemur fram að Birgitta og Finnbogi hafi farið með Alexöndru beint eftir flugið á sjúkrahús. Þar voru teknar prufur, gerðar ýmsar rannsóknir og henni gefin lyf.

Hún fór að hressast, var á batavegi og fengu þau leyfi til að fara með hana heim undir morgun. „Að kvöldi næsta dags veiktist hún mjög hratt og fóru þau strax á sjúkrahúsið aftur, þaðan var hún flutt á háskólasjúkrahúsið í Madríd sem var betur til þess fallið að sinna hennar veikindum,“ segir í færslu Eddu.

Alexandra Eldey hafði að sögn Eddu fengið allar ráðlagðar bólusetningar eins og önnur börn á Íslandi, þar með talið gegn Pneumococcum.  

Hún segir að bæði læknar og hjúkrunarfræðingar hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga Alexöndru en að lítið sé hægt að gera ef þessi baktería nær fótfestu, jafnvel þó viðkomandi sé á sjúkrahúsi. Fjölskylda óskar eftir því að þeim sé veittur friður til að takast á við sorgina.“

Hægt er að leggja söfnuninni lið með því að leggja inn á eftirfarandi reikning hjá Íslandsbanka:  Kt. 020190-3029 0537-14-104955