„Ímyndið ykkur ef kaffibollinn ykkar hefði kostað 50.000 krónur í morgun, súrdeigsbrauðið um 100.000 kall eða nýi bíllinn ykkar um hálfan milljarð króna. Þetta er ekki mjög fjarlægt því þetta væri raunin ef við hefðum ekki tekið tvö 0 af krónunni.“
Þetta sagði Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Ágúst Ólafur talaði þar um íslensku krónuna en hann er mjög fylgjandi því að taka upp annan gjaldmiðil. Spurði hann hvort ekki væri fullreynt með hinn alíslenska gjaldmiðil.
„Nú eru um 100 ár liðin síðan ákveðið var að skrá gengi íslensku krónunnar sérstaklega. Fram til ársins 1920 var íslenska krónan á pari við dönsku krónuna en núna er gengi dönsku krónunnar um 21 íslensk króna. En tökum við tillit til myntbreytingarinnar 1981 er gengi dönsku krónunnar 2.100 gamlar íslenskar krónur. Verðgildi íslensku krónunnar gagnvart hinni dönsku er því aðeins 0,05% af því sem það var árið 1920 sem jafngildir rýrnun upp á 99,95% á þessu 100 ára tímabili.“
Ágúst Ólafur sagði að í veröldinni allri væri vandfundið það fyrirbæri sem hefur rýrnað jafn mikið og íslenska krónan. Sumir héldu því fram að gengisfellingar – en með þeim rýrnar virði krónunnar – séu gott hagstjórnartæki en þetta sama fólk gleymi því að gengisfellingar gerast alltaf á kostnað almennings.
„Með gengisfellingu eru verðmæti færð frá almenningi þar sem krónur venjulegs fólks verða minna virði og innfluttar vörur hækka í verði og verðmætin eru færð til útflutningsgreina, svo sem útgerðarinnar, og með lækkun krónunnar hækkar verðbólgan. Á síðasta ári var krónan í hópi þeirra gjaldmiðla sem veiktust hvað mest. Við erum þar í hópi með Kirgistan, Mósambík og Georgíu.“
Ágúst Ólafur endaði erindi sitt á eftirfarandi spurningu: „Er þetta ekki fullreynt með íslensku krónuna? Er 100 ára sorgarsaga ekki nóg og eigum við ekki að leyfa íslensku krónunni að sofna sínum þyrnirósarsvefni?“