Agnes: „Hún reyndi að nauðga mér á læstri sjúkra­stofu“

„Hætti Aldís ekki sínum lygum og óþverraskap í garð BSchr og JBH þá mun ég gefa hér, á þessum vettvangi, nákvæma lýsingu á því, hvernig hún reyndi að nauðga mér á læstri sjúkrastofu sinni á deild 33 geðdeild, þar sem ég algörlega skíthrædd, var læst inni með froðufellandi kynlífsbrjálaðri graðkerlingu, þegar ég var að gera það sem BSchr og JBH báðu mig um að gera, sinna dóttur þeirra, sýna vinattu og væntumþykju, þegar þau voru svo langt í burtu.“

Þetta skrifar Agnes Bragadóttir, fyrrverandi blaðamaður á Morgunblaðinu, í færslu á vegg Bryndísar Schram á Facebook. Þar segir hún Bryndísi og eiginmann hennar Jón Baldvin Hannibalsson hafa „ verið mínu bestu vinir, í svo ótrúlega langan tíma, og reynst mér sem slíkir allan tímann, án þess að nokkurn tíma félli skuggi á. Fyrir vináttu ykkar, umhyggju og ást verð ég þakklát, svo lengi sem ég lifi.“

„Þegar þið byrjuðuð í þessum viðurstyggilega leðjuslag við Laufeyju og Carmen, þar sem aðalhvatamaður og leikstjóri er Aldís nokkur, svokölluð dóttir ykkar, kippir í þræði, eins og hentar, hjá Laufeyju og Carmen, ákvað ég, að ég myndi ekki koma nálægt þessum viðbjóði, vegna fyrrum trúnaðarsambands míns við Aldísi.

Agnes og Bryn­dís Schram.
Fréttablaðið/Stefán Karlsson

Þeim trúnaði hefur verið aflétt nú, að mínu mati, vegna þess að hin "alheilbrigða Aldís" rauf þann trúnað með óumræðilegum óþverraskap og lygum.“

Aldís segir söguna „miklu lengri og Aldís, ef þú ekki lætur af hatursfullum ofsóknum þínum, þá held ég áfram og greini frekar frá næstu 20 mánuðum á eftir; hvernig ég Sunna og Sindri pössuðum Tönju og tókum hana að okkur um helgar o.s. v.“

Mynd/Facebook
Mynd/Facebook