„Ætíð verið ljóst að Guðni Th. er fremur forseti elítunnar“

„Erum við með forseta sem er að segja okkur að elítan eigi ekki að fara eftir vilja þjóðarinnar, heldur eigi þjóðin að fara eftir vilja elítunnar?“

Að þessu spyr Gunnar Smári Egilsson og gagnrýnir Guðni Th. Jóhannesson, forseta lýðveldisins, fyrir að hafa ekki talað meira fyrir upptöku nýrrar stjórnarskrár.

„Guðni Th. hefur aldrei í forsetatíð sinni stigið fram og lýst því yfir að almenningur hafi valið sér stjórnarskrá og elítunni beri að hlýða. Það er til ein setning eftir hann sem fylgjendur stjórnarskrárfélagsins vitna stundum til, þegar þeir vilja sanna að Guðni Th. sé þeirra maður, en hún var sögð þegar Guðni Th. var að sækja um starfið, var í framboði,“ skrifar Gunnar Smári í færslu á Facebook-síðu sinni.

Ekki lagt áherslu á það í embætti

Þá segir hann Guðna aldrei hafa lagt neina sérstaka áherslu á þjóðaratkvæðagreiðsluna árið 2012 á meðan hann var í embætti og „ekki gert neinar athugasemdir við að elítan hefur hunsað hana.“

„Það hefur ætíð verið ljóst að Guðni Th. er fremur forseti elítunnar, sem telur sig réttborna til valda, fremur en forseti almennings.“

Þá vísar Gunnar til ummæla sem forsetinn lét falla í viðtali á RÚV eftir að hann var aftur settur inn í embætti forseta á laugardag.

Segi allt til um hug Guðna

Þar er hann sagður lýsa yfir stuðningi við ákvæði stjórnarskrárinnar sem héraðsdómari hafi samið fyrir forsætisráðherra og „elítan vill að gildi fremur en sú stjórnarskrá sem þjóðin valdi.“

„Í þessu viðtali ræðir Guðni Th. að forseti eigi að láta í sér heyra þegar hugnast ekki aðgerðir stjórnvalda. Honum tekst svo að ræða stjórnarskrá í nokkrum smáatriðum án þess að geta þjóðaratkvæðagreiðslunnar frá 2012. Það segir allt um hug hans til þess máls,“ bætir Gunnar við.