Sautján ára drengur var fluttur á bráðadeild Landspítalans rétt eftir klukkan eitt í nótt eftir að ráðist var á hann við Norðlingaskóla. Það kemur fram í dagbók lögreglunnar.
Þar segir að tilkynnt hafi verið um líkamsárás rétt eftir klukkan eitt og að drengurinn hafi verið með höfuðáverka. Móðir hans og barnavernd var tilkynnt um árásina. Fram kemur í dagbók lögreglu að hópur unglinga hafi verið á vettvangi þegar lögreglan kom en að árásaraðili hafi verið horfinn.
Í dagbók lögreglu kemur einnig fram að þónokkur fjöldi bifreiða hafi verið stöðvaður vegna gruns um akstur ökumanna undir áhrifum.
Þá var rétt fyrir klukkan 18 í gær tilkynnt um þjófnað úr geymslum í fjölbýlishúsi í hverfi 104. Þar var búið að brjóta upp hurðir og stela verðmætum úr nokkrum geymslum.
Þá var klukkan 19:37 tilkynnt um slagsmál milli tveggja manna á gatnamótum í hverfi 105. Samkvæmt dagbók lögreglunnar hittust þeir á gatnamótum þegar annar þeirra gekk í veg fyrir bifreið hins. Sá sem var í bílnum fór þá út til að ræða við hann og endaði það með slagsmálum. Ökumaður fékk sár á andlit og fór á bráðadeild. Báðir menn hafa gefið skýrslu.