Falleg tímalaus hönnun á barnaleikföngum sem heilla og fanga augað – gjöf sem gleður

Þessi fallegu handgerðu barnaleikföng fást hjá Hnyðju og eru íslenskt handverk. Þetta eru gamaldags dúkkuvagnar, vöggur og vörubílar eins og í gamla daga og eru algjör nostalgía.

Ávallt er leitast eftir að hafa efnivið eins náttulegan og umhverfisvænan og býðst hverju sinni. Þetta er þó eingöngu hugsjónavinna og hefur til dæmis ekki verið ofnæmis- eða öryggisprófað nema af fjölskyldunni sem framleiða. Olían er svokölluð „foodsafe“ olía, það er að segja olía sem má nota á eldhúsvörur og er bakteríu fráhrindandi.

Dúkkuvagnarnir eru einstaklega fallegir og tímalaus hönnun sem fanga augað. Hnyðja er fjölskyldufyrirtæki sem sérhæfir sig í nytja- og skrautmunum, að mestu unnum úr tré. Hver einasti hlutur er smíðaður af natni í höndum og lögð í hann mikil vinna og alúð í anda liðinna ára.

Dúkkuvagnarnir eru hrein dásemd og hægt er að fá þá í fjórum litum; gammel rose sem er antík bleikur litur, lime grænum, sæbláum og rauðum. Gaman er að segja frá því að það fylgja líka með sængurföt.

Hið sama má segja um vörubílana sem minna á gamla tímann, hönnun þeirra er tímalaus og gleðja augað.. Hægt er að fá vörubílana í fjórum litum, bláum, grænum, rauðum og sæbláum.

Dúkkuvöggurnar eru himneskar og gleðja mörg barnshjörtu. Þær fást líka í nokkrum litum.  Hægt er að fá þær í sæbláum lit, rauðar, lime grænar og antík bleikum lit sem kallast Gammel Rose.

Hægt er að kynna sér vörurnar sem í boði eru nánar á heimasíðu Hnyðju.